Breska þingið kemur saman 30. desember

AFP

Breska þingið mun koma saman 30. desember í þeim tilgangi að ræða og staðfesta Brexit-viðskiptasamkomulagið á milli Bretlands og Evrópusambandsins sem náðist í dag. Þá verða aðeins tæpir tveir sólarhringar þar til samkomulagið á að taka gildi.

Talsmaður neðri málstofu breska þingsins greindi frá því að þingforsetinn hefði heimilað þingfund sem á að hefjast kl. 9:30 hinn 30. desember til að fara yfir málið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert