Ofsóttir gera grímur fyrir Vesturlönd

Úígúr-múslimar hafa verið þvingaðir í vinnubúðir þar sem grímur og annar hlífðarvarningur er framleiddur í Kína. Þessu komust rannsakendur New York Times að en vörurnar eru í dreifingu um allan heim. Töluvert hefur verið fjallað um erfiða stöðu þjóðarbrotsins í Kína á undanförnum misserum. 

Þegar eftirspurn eftir grímum og öðrum hlífðarvarningi margfaldaðist við útbreiðslu Kórónuveirunnar voru viðbrögð framleiðenda í Kína að auka framleiðsluna og til þess þurfti mannafla. Í myndskeiðinu sem fylgir fréttinni sést þegar stórir hópar fólks koma til vinnu í verksmiðjunum til að taka þátt í framleiðslunni. Blaðamenn NYT rýndu í hundruði myndskeiða frá verksmiðjunum til að geta sýnt með óyggjandi hætti fram á að þar væru Úígúrar á ferð. Heimildarmenn NYT fullyrða að þar á meðal sé fólk sem sé þvingað til að vinna.

Í Xinjiang-héraði í Kína þar sem Úígúrar eiga uppruna sinn fjölgaði verksmiðjum sem framleiða hlífðarvarning (e. PPE) úr fjórum í 51 þegar faraldurinn tók að herja á heimsbyggðina. Eigi grímur og annar varningur uppruna sinn í héraðinu mun það vera sterk vísbending um að fólk sem er þvingað til starfa hafi átt þátt í framleiðslunni.

Málið er rakið í ítarlegri fréttaskýringu frá New York Times í myndskeiðinu en uppljóstrunin var gerð í júlí.

mbl.is birtir þessa dagana skýr­ing­ar af sem blaðamenn New York Times hafa unnið fyr­ir alla mánuði þessa viðburðaríka árs. Kór­ónu­veir­an er þar fyr­ir­ferðar­mik­il en önn­ur stór frétta­mál á ár­inu eru einnig til skoðunar, þar má nefna dauða Geor­ge Floyds í hönd­um lög­regl­unn­ar í Minn­ea­pol­is og for­seta­kosn­ing­arn­ar í Banda­ríkj­un­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert