Fleiri fórust í flugslysum þrátt fyrir faraldur

Brot úr flaki úkraínsku vélarinnar, sem skotin var niður 8. …
Brot úr flaki úkraínsku vélarinnar, sem skotin var niður 8. janúar í fyrra. Allir 176 sem voru um borð fórust. AFP

Fleira fólk fórst í flugslysum farþegaflugvéla árið 2020 heldur en árið á undan þrátt fyrir að fjölda flugferða hafi fækkað til muna vegna kórónuveirufaraldursins.

Hollenskt ráðgjafafyrirtæki í flugmálum, To70, segir að 299 manns hafi farist í flugslysum í farþegaflugvélum víðs vegar um heiminn á síðasta ári, sem er aukning frá árinu 2019 þegar þeir voru 257 talsins.

Vefsíðan Flightradar 24 greindi frá því að flugferðum farþegavéla hafi fækkað um 42% í fyrra, að því er BBC greindi frá.

Samkvæmt yfirlýsingu frá To70 ná tölurnar yfir dauða fólks vegna slysa í farþegaflugvélum, þar á meðal ef þær hafa verið skotnar niður.

Þegar rýnt er í tölurnar fyrir árið 2020 kemur í ljós að 176 fórust þegar farþegaflugvél frá Úkraínu var skotin niður af írönskum hersveitum í janúar. Þetta er næstum helmingur allra sem fórust í flugslysum í fyrra. Einnig eru í tölunum dauðsföll 98 manns í maí þegar flugvél frá Pakistan brotlenti í borginni Karachi. Í bráðabirgðaskýrslu kom fram að mannleg mistök hafi valdið slysinu.

Að sögn To70 fækkaði slysum á síðasta ári um rúman helming frá árinu áður. Þau voru 86 árið 2019 en 40 árið 2020. Aðeins fimm af þessum 40 slysum urðu fólki að bana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert