FBI óskar eftir aðstoð almennings

Þinghúsið Capitol Hill í Washington.
Þinghúsið Capitol Hill í Washington. AFP

Bandaríska  alríkislögreglan FBI hefur óskað eftir aðstoð almennings við að bera kennsl á þá sem tóku þátt í óeirðunum sem enduðu með því að múgur braust inn í bandaríska þinghúsið í Washington.

Þetta kemur fram á heimasíðu FBI. 

Ekki er einungis óskað eftir ábendingum og upplýsingum heldur hefur FBI óskað eftir myndum og myndböndum. 

„FBI óskar eftir upplýsingum sem geta aðstoðað við að bera kennsl á einstaklinga sem með virkum hætti ýttu undir eða hvöttu til ofbeldis í Washington D.C. FBI þiggur ábendingar, stafrænt efni af óeirðum og ofbeldi í þinghúsinu og nærliggjandi svæði í Washington D.C. þann 6. janúar 2021,“ segir í tilkynningu á heimasíðunni.

Á síðunni er hlekkur þar sem hægt er að hlaða upp efni. 

Einhverjir þátttakendur í óeirðunum hafa þegar gefið sig fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert