„Gróði fram yfir heiðarleika“

737 MAX vél Boeing.
737 MAX vél Boeing. AFP

Bandarískir saksóknarar hafa farið fram á að flugvélaframleiðandinn Boeing greiði sekt upp á 2,5 milljarða bandaríkjadala, því sem jafngildir tæplega 320 milljörðum króna, gegn því að fallið verði frá ákærum um að fyrirtækið hafi svindlað á eftirlitsaðilum í tengslum við 737 MAX vélar fyrirtækisins. 

Þetta tilkynnti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna fyrir skömmu. 

Boeing hafði samið við bandarísk yfirvöld um frestun ákæru. 

Saksóknarar voru harðorðir í garð Boeing þegar tilkynnt var um ákvörðun sektarinnar í dag, og sökuðu fyrirtækið um að hafa sett „gróða fram yfir heiðarleika“ og að hafa reynt að hylma yfir ástand vélanna áður en 2 mannskæð flugslys urðu með skömmum fyrirvara. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert