Konan sem skotin var til bana

Æstur múgur réðst inn í þinghúsið í dag.
Æstur múgur réðst inn í þinghúsið í dag. AFP

Konan sem skotin var til bana, þegar hópur stuðningsmanna Donalds Trumps Bandaríkjaforseta réðst inn í þinghúsið í Washington fyrr í dag, hét Ashli Babbitt.

Hún starfaði áður í bandaríska flughernum til fjórtán ára og var mikill stuðningsmaður Trumps, að því er sjónvarpsstöðin KUSI í San Diego hefur eftir ekkli hennar sem býr þar í grennd.

Lögreglan í Washington hefur gefið upp að hún hafi látist skömmu eftir að hafa hlotið skotáverkann.

Babbitt skilgreindi sjálfa sig á Twitter sem fyrrverandi hermann og lét þar einnig í ljós föðurlandsást sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert