Helmingur íbúa lést úr Covid-19

AFP

Helmingur allra íbúa öldrunarheimilis í Austur-Sussex lést af völdum Covid-19 yfir hátíðirnar. Óttast er að nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem fer eins og eldur í sinu um suðausturhluta Englands sé byrjað að brjóta varnir hjúkrunar- og öldrunarheimila.

Í frétt Guardian kemur fram að 13 af 27 íbúum á Edendale Lodge-öldrunarheimilinu í Crowhurst hafi látist með staðfest eða grun um að vera með Covid-19 síðan 13. desember. Þetta staðfestir framkvæmdastjóri heimilisins, Adam Hutchison, sem einnig rekur öldrunarheimili í  Kent.

Jafnframt hefur yfir þriðjungur starfsfólks greinst með smit á sama tíma og íbúar létust um jólin. Síðasta dauðsfallið varð á mánudag. „Þetta voru hræðileg jól og skelfilegt fyrir starfsfólkið,“ segir Hutchison og bætir við að veiran hafi verið óstöðvandi.

Víðs vegar á Englandi er Covid-19 smitum farið að fjölga að nýju eftir tiltölulega smitlitla mánuði. Á þriðjudag bannaði sveitarstjórn Essex allar heimsóknir á öldrunar- og hjúkrunarheimili á svæðinu. 

Samband öldrunarheimila í Kent varar við erfiðri stöðu þar sem íbúar hafa látist og starfsfólk er fjarverandi vegna veikinda. Jafnframt séu starfsmenn gjörsamlega búnir á líkama og sál sem hefur áhrif á störf þeirra.

Ellen Prosser var bólusett með Oxford/AstraZeneca-bóluefninu í gær en hún …
Ellen Prosser var bólusett með Oxford/AstraZeneca-bóluefninu í gær en hún er 100 ára gömul og býr á öldrunarheimili í London. AFP

Öldrunarheimilin undrast hvers vegna ekki er byrjað bólusetja íbúa þeirra en Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, greindi frá því á þingi á miðvikudag að hann vildi að sú áætlun færi af stað. Búið sé að bólusetja 10% íbúa og 14% starfsfólks. „Það er greinilega þörf á að bæta í,“ sagði Johnson við þingheim. Byrjað var að bólusetja með AstraZeneca bóluefninu í þessari viku á hjúkrunar- og öldrunarheimilum.

Hutchison segir að einhverjir þeirra sem hafi látist hafi ekki átt marga mánuði ólifaða en aðrir hafi hafi verið við ágæta heilsu áður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert