Sakar Twitter um þöggun

Twitter hefur ákveðið að loka aðgangi forsetans ótímabundið, en ákvörðunin …
Twitter hefur ákveðið að loka aðgangi forsetans ótímabundið, en ákvörðunin er sögð hafa verið tekin vegna þess að fosetinn þyki of hættulegur til að nota samfélagsmiðilinn. AFP

Samfélagsmiðillinn Twitter er farinn í hart við Donald Trump Bandaríkjaforseta, en miðillinn hefur nú fjarlægt færslu frá opinberum Twitter-aðgangi forseta Bandaríkjanna eftir að Trump jós þar úr skálum reiði sinnar í kjölfar þess að lokað var á persónulegan aðgang hans á miðlinum.

Twitter hefur ákveðið að loka aðgangi forsetans ótímabundið, en ákvörðunin er sögð hafa verið tekin vegna þess að fosetinn þyki of hættulegur til að nota samfélagsmiðilinn.

Í kjölfarið brá Trump á það ráð að tísta frá opinberum aðgangi forsetaembættis Bandaríkjanna, þar sem hann sakaði Twitter, í samvinnu við Demókrataflokkinn og öfgavinstrið, um brot á málfrelsinu og að þagga niður í honum og þeim „75.000.000 sem kusu hann“. Twitter hefur eytt færslu forsetans og er hún hvergi sjáanleg á opinbera aðgangnum (@POTUS).

Aðgangi forsetans hefur verið lokað.
Aðgangi forsetans hefur verið lokað. AFP

Í yfirlýsingu frá Trump lofar hann stuðningsmönnum sínum að þeir muni brátt geta fylgst með honum á öðrum vettvangi.

Trump og Twitter hafa um nokkurt skeið eldað grátt silfur saman, eða síðan Twitter hóf að setja fyrirvara við færslur Trump í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum á síðasta ári.

Samfélagsmiðillinn ákvað svo að grípa til enn harðari aðgerða á miðvikudag í kjölfar þess að múgur stuðningsmanna Trump braut sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna, en Trump er sakaður um að hafa kynt undir árásinni með orðum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert