Lisa Montgomery tekin af lífi

AFP

Lisa Montgomery, eina konan sem var á dauðadeild bandaríska alríkisins, var tekin af lífi í morgun í alríkisfangelsinu í Terre Hauteí Indiana. Hún er fyrsta konan sem tekin er af lífi af alríkisstjórninni í tæp 70 ár.

Aftökunni var frestað í tvígang, fyrst vegna Covid-19 og síðan af dómara á mánudagskvöldið en úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna í gærkvöldi um að aftakan mætti fara fram varð til þess að aftakan fór fram í nótt. 

Mál Montgomery hefur vakið heimsathygli ekki síst vegna þess að lögmenn hennar sögðu að hún hefði verið veik á geði þegar hún framdi morðið árið 2004. 

Að sögn vitna við aftökuna fjarlægði konan, sem var við hlið Montgomery þegar aftakan fór fram, grímu fangans og spurði hvort hún vildi segja eitthvað að lokum. Svar Montgomery var einfalt „nei“ og tjáði hún sig ekkert frekar.

Lisa Montgomery var úrskurðuð látin klukkan 01:31 að staðartíma eða klukkan 06:31 að íslenskum tíma. Hún var 52 ára er hún lést.

Lögmaður Montgomery, Kelley Henry, segir að allir þeir sem tóku þátt í aftökunni eigi að skammast sín. „Ríkisstjórnin gerði ekkert til þess að stöðva dráp á skemmdri og veruleikafirrtri konu. Aftaka Lisu Montgomery er óréttlát.“

Lisa Mont­gomery myrti Bobbie Jo Stinnett á hrottalegan hátt í desember 2004. Stinnett var 23 ára gömul, nýgift og gekk með sitt fyrsta barn. Þær kynntust í gegnum hundaspjall á netinu. Montgomery sagði Stinn­ett að hún væri einnig þunguð og í kjöl­farið fóru þær að skipt­ast á meðgöngu­sög­um. Mont­gomery ók 281,5 km, frá heim­ili sínu í Kans­as til smá­bæj­ar­ins Skidmore þar sem Stinn­ett bjó. Þar ætlaði Mont­gomery að skoða hvolpa í eigu Stinn­ett.

Stinn­ett átti von á konu sem hét Dar­lene Fischer en Fischer var nafnið sem Mont­gomery hafði notað á net­inu þegar hún spjallaði við Stinn­ett. Þegar Stinn­ett opnaði úti­dyra­h­urðina réðst Mont­gomery á hana, kyrkti með reipi og skar barnið út úr kvið henn­ar og skildi Stinn­ett eft­ir í blóði sínu.

Rann­sak­end­ur komust fljótt að því að Dar­lene Fischer var ekki til og næsta dag fundu þeir Mont­gomery í gegn­um tölvu­póst­ana og vist­fang tölvu henn­ar. Þegar þeir komu heim til henn­ar var Lisa með ný­fædda stúlku í fang­inu sem hún sagðist hafa fætt dag­inn áður. Stutt­an tíma tók að hrekja allt það sem Lisa sagði sem játaði á sig morðið fljót­lega.

Stjórnvöld þrýstu á um aftökuna

Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu var aftakan í samræmi við dóm alríkisdómara en Hæstiréttur hafði aðeins stuttu áður heimilað aftökuna þrátt fyrir efasemdir um geðheilsu fangans. Kom úrskurður Hæstaréttar í kjölfar þrýstings frá ríkisstjórn Donalds Trumps um að aftakan færi fram. 67 ár eru síðan alríkið tók konu síðast af lífi og útlit fyrir að það verði ekki gert næstu árin þar sem Joe Biden, sem tekur við embætti forseta Bandaríkjanna eftir viku, er eindreginn andstæðingur dauðarefsinga. 

Kelley Henry segir ákvörðun stjórnvalda grimmilega, ólöglega og óþarfa æfingar yfirvalda til þess að sýna vald sitt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert