Þungvopnaðir við bandarísk þinghús

Þungvopnaðir liðsmenn bandarísku öfgahreyfingarinnar „Boogaloo-bois“ eru teknir að safnast saman við bandarísk þinghús í nokkrum höfuðborgum ríkja í Bandaríkjunum. Tilefnið er væntanleg innsetning Joes Bidens í forsetaembættið en margir meðlimir hreyfingarinnar segjast opinberlega þó hvorki fylgja Trump né Biden að málum.

Í myndskeiðinu frá AFP-fréttaveitunni sem fylgir fréttinni er sýnt hvar Boogaloo-drengirnir, eins og þeir eru jafnan kallaðir, hafa tekið sér stöðu við þinghús í Columbus í Ohioríki og Salem í Oregon. Í því líkir einn liðsmaður atburðum undanfarinna daga við lykilatburð í  frönsku byltingunni þegar almenningur réðst inn í Bastilluna. 

Meðlimur Boogaloo-drengjanna tekur sér stöðu fyrir utan þinghús Oregon-ríkis í …
Meðlimur Boogaloo-drengjanna tekur sér stöðu fyrir utan þinghús Oregon-ríkis í Salem með árasarriffil, gasgrímu og hjálm. Þrátt fyrir að margir þeirra segist ekki styðja Trump mótmæla Boogaloo-drengirnir því sem þeir segja að hafi verið kosningasvik í forsetakosningunum. AFP

Þrátt fyrir yfirlýsingar um að fylgja ekki Trump að málum hefur bandaríska alríkislögreglan FBI varað við mögulegum ofbeldisverkum af þeirra hálfu ef þingið myndi komast að þeirri niðurstöðu að víkja Trump forseta frá embætti fyrir hlut sinn í uppþotinu í Washington í síðustu viku þegar mótmælendur ruddust inn í þingið.

Mik­il ör­ygg­is­gæsla er í Washingt­on fyr­ir innsetningarat­höfn­ina á miðvikudag og um 25 þúsund þjóðvarðliðar verða send­ir til höfuðborg­ar­inn­ar til öryggisgæslu.

FBI hefur varað við ofbeldisverkum í öllum 50 ríkjum Bandaríkjanna …
FBI hefur varað við ofbeldisverkum í öllum 50 ríkjum Bandaríkjanna þegar Joe Biden tekur við völdum á miðvikudag. Þessir Boogaloo-drengir mótmæltu í Columbus í Ohio ríki. AFP
Skilaboðin sem margir Boogaloo-drengirnir bera eru misvísandi. Hér halda þeir …
Skilaboðin sem margir Boogaloo-drengirnir bera eru misvísandi. Hér halda þeir á skiltum sem segja þeim félögum Biden og Trump báðum að fara norður og niður. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert