Joe Biden er 46. forseti Bandaríkjanna

Joe Biden hefur svarið embættiseið sem 46. forseti Bandaríkjanna. Tekur hann við embættinu eftir fjögurra ára valdatíð Donalds Trump.

Biden sór eiðinn með aðstoð forseta hæstaréttar, John Roberts. Skömmu áður hafði Kamala Harris svarið eið sem varaforseti Bandaríkjanna.

Þau hafa því formlega tekið við valdataumum landsins.

Joe Biden heilsar fyrrverandi forsetanum Barack Obama, sem valdi hann …
Joe Biden heilsar fyrrverandi forsetanum Barack Obama, sem valdi hann sem varaforsetaefni sitt árið 2008. AFP
Kamala Harris heilsar fyrirrennara sínum í embætti, Mike Pence.
Kamala Harris heilsar fyrirrennara sínum í embætti, Mike Pence. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert