Fordæmir ofbeldisfull mótmæli

Mótmælandi öskrar á lögregluþjón í Amsterdam.
Mótmælandi öskrar á lögregluþjón í Amsterdam. AFP

Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, fordæmdi í dag ofbeldi eftir mótmæli gegn hertum sóttvarnaaðgerðum í nokkrum borgum landsins um helgina. Útgöngubann tók gildi vegna fjölda kórónuveirusmita.

Alls voru 250 mótmælendur handteknir en óeirðalögregla beitti táragasi og öflugum vatnsbyssum til að dreifa fólki sem kom saman til mótmæla.

Kveikt var í sýnatökumiðstöð í bænum Urk í Hollandi.
Kveikt var í sýnatökumiðstöð í bænum Urk í Hollandi. AFP

Sum­ir þeirra hentu flug­eld­um í átt að lög­reglu, brutu rúður og brut­ust inn í versl­an­ir.

„Þetta er óviðunandi,“ sagði Rutte við hollenska fréttamenn í dag.

„Það er ekkert hægt að tengja þetta mótmælum, þetta er einfaldlega ofbeldi og við skoðum málið þannig,“ bætti Rutte við.

Mótmælendur brutu rúður í Eindhoven.
Mótmælendur brutu rúður í Eindhoven. AFP

John Jorritsma, borgarstjóri Eindhoven, líkti ástandinu við borgarastyrjöld og óskaði eftir aðstoð hersins.

Útgöngu­bann er í gildi frá 21:00 til 04:30 en frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa 944 þúsund greinst með veiruna í Hollandi og 13.646 lát­ist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert