16 ára talinn undirbúa hryðjuverk

Ljósmynd/Politiforum.no

Norska ör­ygg­is­lög­regl­an (PST) handtók í gær 16 ára sýrlenskan pilt sem er grunaður um að hafa verið að undirbúa árás í landinu.

Pilturinn hefur búið í Ósló í nokkur ár og segir talsmaður PST, Trond Hugubakken, í samtali við AFP-fréttastofna að hann hafi verið byrjaður að undirbúa árásina. 

Hugubakken segir að fyrirhuguð árás hafi átt að vera alvarleg og stærri en venjulega er. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir piltinum í fjórar vikur en lögmaður hans segir í samtali við VG að það sé ekki eðlilegt að setja 16 ára pilt í gæsluvarðhald. Hann er með sýrlenskan ríkisborgararétt og samkvæmt VG er hann stuðningsmaður Ríkis íslams sem kom til Noregs í gegnum fjölskyldusameiningu. 

„Hann segist vera saklaus og fer fram á að vera látinn laus. Það samrýmist ekki aldri hans að vera hnepptur í gæsluvarðhald,“ segir Andreas Berg Fevang lögmaður hans. 

Hugubakken segir í samtali við VG að undanfarin ár hafi PST séð ungmenni, jafnvel börn niður í 13 til 14 ára, öfgavæðast. Hvort sem það eru öfgaíslamistahreyfingar eða öfgahægrihreyfingar.

Norska lögreglan ákærði þrítuga norska konu, af pakistönskum uppruna, fyrir þátttöku í vígasamtökum en hún fékk að koma heim til Noregs í fyrra úr Al-Hol-búðunum í Sýrlandi af mannúðarástæðum.

Frétt VG

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert