Peter Madsen hlaut 21 mánaðar dóm

Lögreglu tókst að umkringja Peter Madsen stuttu eftir að honum …
Lögreglu tókst að umkringja Peter Madsen stuttu eftir að honum tókst að sleppa úr fangelsinu. AFP

Morðinginn Peter Madsen hefur verið dæmdur í 21 mánaðar fangelsi fyrir flóttatilraun í október í fyrra. Hann var einnig dæmdur til að greiða hátt í 400 þúsund krónur í bætur til sálfræðings sem hann hótaði lífláti.

Í dómsal greindi Madsen frá því að strax í mars árið 2019 hafi hann ætlað að flýja úr fangelsinu vegna slæmra aðstæðna þar, að sögn Ekstra Bladet

Madsen er sagður hafa verið fluttur í dómsalinn í þessum …
Madsen er sagður hafa verið fluttur í dómsalinn í þessum lögreglubíl. AFP

Þann 20. október tókst honum að sleppa úr Hersstedvester-fangelsinu þar sem hann afplánaði lífstíðardóm fyrir morðið á sænsku blaðakonunni Kim Wall.

Með gervibyssu og sprengibelti með gervisprengjum hótaði hann fyrst sálfræðingi sem starfaði í fangelsinu og síðan fangaverði, sem þorðu ekki annað en að sleppa honum lausum.

Madsen var handsamaður skömmu síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert