„Við erum bara rétt að byrja“

Trump kvaddi Washington í janúar.
Trump kvaddi Washington í janúar. AFP

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur lýst yfir sigri eftir niðurstöðu öldungadeildar Bandaríkjaþings þar sem hann var sýknaður af ákæru full­trúa­deild­ar þings­ins til emb­ætt­ismissis. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Trump. 

Er þetta í annað sinn sem Trump er sýknaður af ákæru til embættismissis en hann er fyrsti forsetinn til að ganga í gegnum það. Í yfirlýsingunni þakkar Trump lögfræðiteymi sínu og segir hann það hafa varist kröftuglega með sannleikann að vopni. 

Þar segir enn fremur: „Okkar sögulega hreyfing, Gerum Bandaríkin frábær aftur, er bara að byrja. Ég á eftir að deila ýmsu með ykkur á komandi mánuðum og hlakka mjög til að halda áfram vegferð okkar. Saman getum við náð frábærum árangri fyrir fólkið í landinu,“ var haft eftir Trump. 

Tvo þriðju hluta öldungadeildarinnar þarf til að sakfella í ákæru til embættismissis. At­kvæði féllu svo að 57 greiddu at­kvæði með sak­fell­ingu og 43 með sýknu. Hann var upphaflega ákærður til emb­ætt­ismissis í full­trúa­deild­inni fyr­ir að „hvetja til inn­rás­ar“ í þing­húsið í ræðu í Washingt­on 6. janú­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert