Forðuðu TF-SIF frá eldgosi

TF-SIF með Etnu í bakgrunni.
TF-SIF með Etnu í bakgrunni. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, hafði hraðan á og kom vélinni í skjól í flugskýli á Sikiley síðdegis í dag þegar eldfjallið Etna minnti enn einu sinni á sig og byrjaði að gjósa.

Töluvert öskufall fylgdi gosinu og því þótti brýnt að koma vélinni fyrir í flugskýli á flugvellinum í Catania, að því er fram kemur á facebook-síðu Landhelgisgæslunnar.

Áhöfnin á TF-SIF sinnir landamæraeftirliti á Miðjarðarhafi á vegum Frontex, landamærastofnunar Evrópu, um þessar mundir og áhöfnin var nýlent á Sikiley eftir eftirlitsflug þegar Etna rankaði við sér. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert