Fyrstu bóluefnaskammtar Covax-samstarfsins

AFP

Fyrstu bóluefnaskammtarnir koma til Gana í dag en um er að ræða fyrstu afhendingu á bóluefni í gegnum Covax-samstarfið. UNICEF gegnir lykilhlutverki í Covax-samstarfinu – samstarfi 192 landa sem tryggja á jafna dreifingu bólu­efn­is gegn kórónaveirunni meðal fá­tækari ríkja heims­ins. Þar mun UNICEF leiða innkaup og afhendingu á bóluefnunum til yfir 90 lág- og millitekjuríkja.

Í tilkynningu frá UNICEF kemur fram að um er að ræða 600 þúsund skammta af AstraZeneca-bóluefninu sem framleitt var af Serum-stofnuninni á Indlandi.

Alls mun Covax afhenda tvo milljarða bóluefnisskammta við Covid-19 fyrir lok árs 2021. 

„Þetta er stærsta verkefni UNICEF á sviði bólusetninga fyrr og síðar og umfangið er sögulegt, enda aldrei jafn mikið verið í húfi. UNICEF nýtir sérþekkingu sína í útboði og dreifingu bóluefna til að tryggja að öll lönd hafi jafnan aðgang að fyrstu skömmtunum þegar þeir verða í boði,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, á vef UNICEF.

UNICEF hefur í áratugi verið leiðandi í bólusetningum og er stærsti einstaki kaupandi bóluefna í heiminum. Á hverju ári bólusetja UNICEF og samstarfsaðilar hátt í helming allra barna í heiminum gegn lífshættulegum sjúkdómum á borð við mislinga, mænusótt, rauða hunda og stífkrampa. Nú þegar hefur UNICEF komið upp gríðarstórum lager af sprautum og viðræður eru í fullum gangi við flutningsaðila, meðal annars stærstu flugfélög heims, um dreifingu á bóluefnum gegn Covid-19.

UNICEF hefur undanfarið unnið að því að meta getu flugfélaganna, kortleggja helstu flugleiðir og rýna í stærstu áskoranirnar við afhendingu bóluefnanna. Það er nefnilega ekki alltaf einfalt að koma bóluefnum á áfangastað, sérstaklega á afskekktum svæðum, og þar mun sérþekking UNICEF í köldu keðjunni (e. cold chain) gegna veigamiklu hlutverki í skipulagningu.

„UNICEF hefur mikla reynslu í því að finna leiðir til að koma bóluefnum til barna á afskekktum eða stríðshrjáðum svæðum. Oft þarf að notast við ólíka samgöngumáta, til dæmis mótorhjól, asna eða jafnvel fara fótgangandi yfir fjöll og dali með kælitöskur sérstaklega útbúnar til að bóluefnið haldist við rétt hitastig,“ segir Birna.

Þá undirbýr UNICEF, í samstarfi við Alþjóðasamtökin um bólusetningar (GAVI) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO), nauðsynlega innviði, leiðbeiningar um verklag og þjálfun starfsfólks sem þarf fyrir örugga framkvæmd bólusetninga í efnaminni ríkjum.

Bóluefni fyrir alla

Kórónuveirufaraldurinn hefur raskað lífi barna um allan heim og sett áratuga árangur af þróunarsamvinnu í mikla hættu. Því er mikilvægt að forgangsraða dreifingu bóluefna þannig að ójöfnuður aukist ekki enn frekar. Eins og fram hefur komið í fréttum taka íslensk stjórnvöld þátt í Covax-samstarfinu og fjármagna bóluefni fyrir fátækari ríki heimsins. UNICEF á Íslandi fagnar þeirri ákvörðun stjórnvalda enda ljóst að mikinn samtakamátt þarf til að fjármagna dreifinguna til landa um allan heim, sem er kostnaður sem bætist ofan á önnur verkefni UNICEF í þágu barna að því er segir á vef UNICEF.

UNICEF hefur hleypt af stokknum nýju mælaborði fyrir bóluefnamarkaðinn sem er gagnvirkt tæki fyrir lönd, samstarfsaðila og framleiðsluiðnaðinn. Þar verður hægt að fylgjast með þróun bóluefna gegn Covid-19 og árangri Covax-samstarfsins í að tryggja sanngjarnt verð og sanngjarnt aðgengi allra landa í heiminum að bóluefnum. Þetta er gert til að tryggja gagnsæi, skilvirkni og frjálst flæði upplýsinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert