Begum fær ekki að snúa aftur til Bretlands

Renu, elsta systir Shamimu Begum heldur á mynd af systur …
Renu, elsta systir Shamimu Begum heldur á mynd af systur sinni árið 2015. AFP

Hæstiréttur Bretlands úrskurðaði í dag að Shamima Begum fengi ekki að snúa aftur til Bretlands. Hún fór þaðan til Sýrlands til þess að ganga til liðs við Ríki Íslams þegar hún var unglingur að aldri. Nú er hún 21 árs gömul og hafði óskað eftir því að fá að ferðast til Bretlands til þess að berj­ast gegn þeirri ákvörðun stjórn­valda að svipta hana bresk­um rík­is­borg­ara­rétti. 

Inn­an­rík­is­ráðuneyti Bret­lands svipti Beg­um rík­is­borg­ara­rétti á síðasta ári eft­ir að hún fannst í flótta­manna­búðum, en áfrýj­un­ar­dóm­stóll­ komst að þeirri niður­stöðu að Beg­um hafi ekki hlotið rétt­mæta málsmeðferð þar sem hún hafi ekki getað borið hönd fyr­ir höfuð sér úr flótta­manna­búðunum í Sýr­landi. Þess vegna taldi áfrýjunardómstólsins að leyfa ætti Begum að snúa aftur til Bretlands.

Ekki brotið á réttindum Begum

Innanríkisráðuneyti Bretlands áfrýjaði niðurstöðu áfrýjunardómstólsins til Hæstaréttar en ráðuneytið hélt því fram að endurkoma Begum myndi skapa verulega þjóðaröryggishættu. 

Í samhljóma úrskurði Hæstaréttar sagði að ekki hafi verið brotið á réttindum Begum þegar henni var synjað um leyfi til að snúa aftur til Bretlands. 

Tals­vert hef­ur verið fjallað um mál Beg­um en hún er ein þriggja breskra skóla­stúlkna sem yf­ir­gáfu Lund­úni til að ganga til liðs við Ríki Íslams í Sýr­landi árið 2015.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert