Mörg hundruð særðust í Jerúsalem

Átök brutust út við moskuna.
Átök brutust út við moskuna. AFP

Mörg hundruð manns særðust í átökum sem áttu sér stað á milli Palestínumanna og ísraelsku lögreglunnar við moskuna Al-Aqsa í borginni Jerúsalem í morgun.

Samtökin Rauði hálfmáninn greindu frá því í tilkynningu að um fimmtíu manns hefðu verið fluttir á sjúkrahús.

Óttast er að átökin haldi áfram í dag í tengslum við árlega fánagöngu í Jerúsalem þar sem Ísraelar minnast þess er þeir hertóku Austur-Jerúsalem árið 1967.

Margir Palestínumenn líta á gönguna sem vísvitandi ögrun af hálfu Ísraela.

AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert