Þriðjungur Færeyinga hefur fengið fyrri skammtinn af bóluefni við Covid-19. Þessum áfanga fögnuðu Færeyingar í gær þegar 849 manns voru bólusettir. Þeir gengu þá í hóp 17.684 Færeyinga sem hafa fengið að minnsta kosti fyrri bólusetninguna. Einnig eru 6.684 Færeyingar fullbólusettir eða um einn áttundi þjóðarinnar.
Haldið verður áfram að bólusetja í Færeyjum fram á laugardag og eru allir eldri en 45 ára boðaðir í bólusetningu. Danska landlæknisembættið hefur greint frá því að þau muni hætt að nota bóluefni frá AstraZeneca og Johnson&Johnson gegn Covid-19. Frestast þá að fullbólusett verði á Færeyjum um nokkrar vikur þar til í ágúst.