Fordæma árásir á börn

UNICEF fordæmir árásir á börn og óbreytta borgara í Palestínu. Staðfest er að að minnsta kosti níu börn voru drepin í loftárásum á Gaza í gær og fjölmörg slösuðust illa. Um helgina slösuðust 29 palestínsk börn, mörg mjög alvarlega, og átta börn voru handtekin í átökum í Jerúsalem. Að minnsta kosti þrír skólar hafa verið eyðilagðir, einn í Ísrael og tveir á Gaza. Þetta kemur fram á vef UNICEF á Íslandi.

„Átök hafa mikil og langvarandi áhrif á börn og ofbeldi og óöryggi gagnvart börnum í Palestínu hefur staðið yfir allt of lengi. Binda þarf endi á ofbeldið og tryggja öryggi óbreyttra borgara, þá sérstaklega barna, og sleppa tafarlaust öllum börnum sem eru nú í haldi lögreglu. Öll börn eiga sama rétt!“ segir þar ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert