Íbúar Venesúela flýja til Kólumbíu

Flóttafólk frá Venesúela.
Flóttafólk frá Venesúela. AFP

Þúsundir Venesúelabúa hafa flúið land í þessum mánuði en þar geysa mikil átök á milli þjóðarhersins og kólumbískra uppreisnarmanna, kemur fram í umfjöllun BBC.

Flóttamenn segja herinn hafa þvingað þá út af heimilum sínum og lýsa mannréttindabrotum, mannshvörfum og innbrotum inn á heimili þeirra.

Að sögn þriggja háttsettra embættismanna í Venesúela var leiðtogi stærsta skæruliðahóps Kólumbíu, Jesús Santrich tekinn af lífi í átökunum, á yfirráðasvæði Venesúelabúa á þriðjudag, eins og segir í umfjöllun New York Times.

Blaðamaður á vegum BBC ferðaðist til smábæjarins í Araquita í Kólumbíu, til að taka stöðuna á flóttamannabúðum sem þar eru að finna.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert