Armenskur hermaður féll í skotárás

Frá átökum á Nagorno-Karabakh.
Frá átökum á Nagorno-Karabakh. AFP

Armenskur hermaður féll í dag í skotárás við aserska herinn við landamæri Aserbaídsjan og Armeníu samkvæmt tilkynningu frá varnarmálaráðuneyti Armeníu. 

Áfram er spennustig á landamærunum hátt eftir átök síðasta haust um landssvæðið Nagorno-Karabakh. 

„Einn hermanður hefur látist eftir skotárás sem hófst með skotum frá aserskum hermönnum,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að árásin hafi átt sér stað við landamærin Armeníumegin og að nú hefði náðst „ró“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert