Drengurinn sem lifði af kláfaslysið kominn af gjörgæslu

Kláfurinn hrapaði til jarðar á Ítalíu í maí.
Kláfurinn hrapaði til jarðar á Ítalíu í maí. AFP

Fimm ára drengur sem komst lífs af þegar kláfur hrapaði til jarðar á Ítalíu í maí er nú kominn af gjörgæsludeild. 

Drengurinn var sá eini sem komst lífs af úr slysinu en meðal látinna voru báðir foreldrar hans, bróðir og langamma og langafi. 

AFP-fréttastofan hefur eftir læknum á sjúkrahúsi í Tórínó að drengurinn sýni batamerki en hann hlaut áverka á bringu og kvið.

Drengurinn er frá Ísrael en hafði flutt með fjölskyldu sinni til Norður-Ítalíu árið 2018. 

Þrír menn voru handteknir vegna slyssins; eigandi fyrirtækisins sem rekur kláfinn, rekstrarstjóri og verkfræðingur. Þeim var sleppt úr haldi um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert