Frakklandsforseti sleginn utanundir

Macron Frakklandsforseti sá þetta líklega ekki fyrir.
Macron Frakklandsforseti sá þetta líklega ekki fyrir. Skjáskot/Twitter

Tveir hafa verið handteknir í tengslum við uppákomu sem átti sér stað í litlu þorpi í sunnanverðu Frakklandi í dag. Þar sést Emmanuel Macron Frakklandsforseti heilsa fjölda fólks, sem flest tók vel á móti honum. 

Það átti þó ekki við um mann sem tók sig til og sló Macron utanundir með flötum lófanum. Macron varð bylt við og hörfaði á meðan lífverðir hans réðust að sökudólgnum, sem stóð aftan við girðingu. 

Myndskeið náðist af atburðinum og má sjá það hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert