Myndir sýna umfang hamfaranna í Flórída

Ljósmyndir af vettvangi sýna hve skelfilegar hamfarirnar eru.
Ljósmyndir af vettvangi sýna hve skelfilegar hamfarirnar eru. AFP

Enn er um hundrað manns saknað eftir að eft­ir að tólf hæða íbúðar­hús hrundi að hluta í strand­bæn­um Surfsi­de í Miami í Flórída í nótt.

Talið er að fjöldi fólks sé enn fast­ur í rúst­um Champlain-turn­anna og ótt­ast lög­regla að tala lát­inna muni hækka tölu­vert.

Samkvæmt lögreglunni í Seaside er enn óvíst hvað varð til þess að byggingin hrundi. 

„Þetta gæti verið af mismunandi ástæðum, við erum enn á frumstigi rannsóknarinnar,“ sagði Freddy Ramirez, forstöðumaður lögregluembættisins í Miami-Dade í samtali við fréttastofu AFP.

Ljósmyndir af vettvangi varpa ljósi á umfang hamfaranna. 

AFP
AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert