Að minnsta kosti fjórir látnir í Flórída

Tala látinna eftir hrun annars Champlain-turn­anna í Miami í gær hefur nú hækkað í fjóra. 159 er enn saknað.

Champlain-turnarnir eru tólf hæða íbúðar­hús í strand­bæn­um Surfsi­de í Miami í Flórída. Að sögn yfirvalda er enn óljóst hversu margir voru inni í húsinu þegar það hrundi en 120 manns hafa nú þegar gefið sig fram. 

Borgarstjóri Miami segir enn vera von að fórnarlömb finnist í rústunum. Orsök slyssins eru enn óljós.

Leit stendur enn yfir.
Leit stendur enn yfir. AFP
Íbúðarhúsið er í strand­bæn­um Surfsi­de í Miami í Flórída.
Íbúðarhúsið er í strand­bæn­um Surfsi­de í Miami í Flórída. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert