Fjarlægja varnargarða við þinghúsið

AFP

Nú meira en hálfu ári eftir árásina á bandaríska þinghúsið í Washington hófu yfirvöld í dag að taka niður girðingar og hindranir í kringum bygginguna. Einhverjar takmarkanir á aðgangi inn í húsið verða þó áfram í gildi.

Hóp­ur stuðnings­manna Donalds Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, réðst inn í þing­húsið í janúar sl. með þeim af­leiðing­um að fimm manns lét­ust. Fjölmargir til viðbótar slösuðust í átökum.

Starfsfólk sást fjarlægja hluta úr tæplega tveggja og hálfs metra svartmálaðri girðingu sem reist var í kjölfar innrásarinnar. Vinna við að fjarlægja girðinguna á að klárast eftir helgi. 

Þúsundir þjóðvarðliða voru staðsettir í og við þinghúsið í kjölfar árásarinnar og gaddavírsgirðingar víggirtu svæðið mánuðum saman. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert