Tala látinna hækkar og Merkel ávarpar þjóðina

Angela Merkel, kanslari Þýskalands ávarpaði þjóðina vegna þeirra miklu flóða …
Angela Merkel, kanslari Þýskalands ávarpaði þjóðina vegna þeirra miklu flóða sem geisa nú þar í landi. Ljósmynd/Samsett

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segist finna til mikillar og djúpstæðrar samkenndar með fórnarlömbum þeirra miklu flóða sem geisa nú þar í landi, en að minnsta kosti 59 manns eru látnir í Þýskalandi og Belgíu af völdum flóðanna.

Merkel er stödd í Washington-borg í Bandaríkjunum í opinberri heimsókn og ávarpaði hún því þýsku þjóðina frá Hvíta húsinu.

„Ég votta öllum þeim sem misst hafa ástvin eða óttast um örlög þeirra sem enn er saknað, í þessum skelfilegu hamförum, mína dýpstu samúð,“ sagði hún í ávarpi sínu.

Ríkisstjórnin myndi ekki skilja þau sem hefðu lent illa í hamförunum „alein eftir í þjáningu sinni“ heldur muni hún gera „sitt allra besta“ í að hjálpa þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert