Tollum aflétt á mat og lyfjum

Mótmælandi á Kúbu heldur uppi ljósmynd af forsætisráðherra landsins með …
Mótmælandi á Kúbu heldur uppi ljósmynd af forsætisráðherra landsins með yfirskriftinni þjóðarmorð. AFP

Yfirvöld á Kúbu hafa tímabundið aflétt tollum af mat, lyfjum og öðrum nauðsynjarvörum. Stærstu mótmæli frá stjórnarbyltingunni á sjötta áratugnum standa nú yfir í landinu, en mikil óánægja ríkir gagnvart stjórnvöldum í landinu. 

Skort­ir lands­menn raf­magn, vatn og mat, svo eitt­hvað sé nefnt. Á sama tíma hef­ur fjöldi Covid-19-smita aukist og ástandið í heil­brigðis­kerf­inu versnað.

Frá og með næsta mánudegi verða engar takmarkanir á innflutningi ferðamanna á nauðsynjarvörum, en það hefur verið á meðal krafna mótmælenda að þeir sem ferðist til Kúbu geti komið með birgðir af nauðsynjavörum án þess að þurfa greiða af þeim toll. 

Nýjar reglur á innflutningi ferðamanna á nauðsynjarvörum verða endurskoðaðar eftir 31. desember. 

Fram kemur í frétt BBC að óljóst sé hverju nýju reglurnar eigi eftir að breyta, þar sem fáir ferðamenn hafa komið til landsins að undanförnu sökum kórónuveirunnar. „Nei, við viljum ekki mylsnur, við viljum frelsi. Blóði var ekki úthellt á götur Kúbu til þess að fá nokkrar auka ferðatöskur til landsins,“ sagði kúbverski blaðamaðurinn Yoani Sanchez skömmu eftir að reglurnar voru kynntar af Manuel Marrero Cruz, forsætisráðherra landsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert