Vatnshæðin náði upp að öxlum

Að minnsta kosti 12 hafa látist í rigningarflóðum í Henan-héraði …
Að minnsta kosti 12 hafa látist í rigningarflóðum í Henan-héraði í Kína. Skjáskot/Twitter

Yfir tíu þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna mikilla rigningarflóða í Henan-héraði í Kína. Að minnsta kosti tólf hafa látið lífið í Zhengzhou-borg síðan flóðin hófust, að því er BBC greinir frá.

Flugferðum hefur verið aflýst og stofnbrautum lokað í tugum borga í Henan, þar sem íbúar eru um 94 milljónir. Þar er nú í gildi hæsta neyðarstig almannavarna vegna rigninganna.

Sláandi myndband sem birtist á Twitter í dag sýnir hvernig vatnshæðin náði upp að öxlum lestarfarþega í Zhengzhou, þar sem ástandið er hvað alvarlegast. Fleiri myndbönd af ástandinu hafa verið birt á miðlinum.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert