Ráns- eða yfirtökutilraun á flutningaskipinu Asphalt Princess er lokið og er skipið öruggt að sögn breskra siglingayfirvalda.
Tilkynningu þess efnis var tíst af opinberum reikningi siglingamálayfirvalda í Bretlandi fyrir um klukkustund.
Þar segir: Óboðnir gestir hafa yfirgefið skipið. Skip er öruggt. Atviki lokið.
WARNING 001/AUG/2021 Update 002
— United Kingdom Maritime Trade Operations (UKMTO) (@UK_MTO) August 4, 2021
Category: Incident – Potential Hijack – Non Piracy
Description: Boarders have left the vessel. Vessel is safe. Incident completehttps://t.co/toURu6jSzg#MaritimeSecurity #marsec pic.twitter.com/IvC44GOiic
Grunur leikur á að um ránstilraun hafi verið að ræða en ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum. Atvikið gerist aðeins nokkrum dögum eftir að möguleg drónaárás var gerð á Mercer Street í síðustu viku þar sem tveir létust; breskur öryggisvörður og rúmenskur áhafnamaður.
Bandaríkin, Bretland og Ísrael segja Íran standa að baki árásinni.