Tveir lögreglumenn reknir eftir innrásina

Tveir lögreglumenn voru reknir fyrir þátt sinn í innrás stuðningsmanna …
Tveir lögreglumenn voru reknir fyrir þátt sinn í innrás stuðningsmanna Donalds Trumps í þinghúsið í Washington. AFP

Hjón sem bæði störfuðu hjá lögreglunni í Seattle hafa verið rekin eftir að hafa tekið þátt í innrás stuðningsmanna Donalds Trumps í þinghúsið í Washington í janúar.

Þau Alexander og Caitlin Everett voru ekki á vakt þegar þau tóku þátt í innrásinni en BBC greinir frá því að þau hafi ætt inn á lokuð svæði og tekið virkan þátt í innrásinni. 

Að minnsta kosti 535 mótmælendur hafa verið handteknir eftir innrásina í janúar og fimm létust í átökunum.

Aðstoðarlögreglustjóri Seattle, Adrian Diaz, ákvað að víkja hjónunum frá störfum en í málsskjölum kemur fram að þau hafi varist öllum ásökunum. Diaz segir þá að þáttur þeirra í innrásinni sé óviðunandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert