Engar undantekningar vegna sifjaspella eða nauðgana

Stuðningsfólk hertra laga um þungunarrof í Texas.
Stuðningsfólk hertra laga um þungunarrof í Texas. AFP

Lög sem gera þungunarrof eftir sjöttu viku meðgöngu ólöglegt, og veita ekki undanþágur í tilvikum sifjaspella eða nauðgana, tóku gildi í Texas dag. Hæstiréttur Bandaríkjanna brást ekki við neyðarbeiðni um að koma í veg fyrir gildistöku laganna. Einungis má gera undantekningar á baninu ef heilsu konunnar er talið ógnað af meðgöngunni.

Repúblikaninn Greg Abbott, ríkisstjóri Texas, samþykkti lögin í maímánuði. Þau leggja bann við þungunarrofi eftir að hjartsláttur fósturs verður greinanlegur. Það er almennt á sjöttu viku meðgöngu. Lögin gera Texas að því ríki Bandaríkjanna þar sem hvað erfiðast er að komast í þungunarrof. 

Um 85 til 90% þeirra sem fara í þungunarrof í Texas eru komin að minnsta kosti sex vikur á leið þegar þungunarrof er framkvæmt. Af þeim sökum er útlit fyrir að lögin banni langflest þungunarrof innan ríkisins. 

Greg Abbott ríkisstjóri samþykkti lögin sem takmarka frelsi fólks til …
Greg Abbott ríkisstjóri samþykkti lögin sem takmarka frelsi fólks til þess að fara í þungunarrof verulega. AFP

Almennir borgarar geta höfðað einkamál á hendur fólki sem talið er hafa farið í eða framkvæmt þungunarrof í Texas

Önnur ríki sem hafa sóst eftir því að takmarka aðgengi að þungunarrofi snemma á meðgöngu hafa ekki komsit upp með það vegna Roe v. Wade dóms hæstaréttar sem féll árið 1973. Með dómnum var þungunarrof gert heimilt á meðan fóstur er ekki lífvænlegt sem er almennt ekki staðan fyrr en á 22 til 24 viku meðgöngu. 

Lögin í Texas eru óvenjuleg að því leiti að þau heimila almenningi að framfylgja lögunum. Þannig geta almennir borgarar höfðað einkamál á hendur þeim sem þeir telja að hafi gerst brotlegir við lögin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert