„Fordæmalaus árás á réttindi kvenna“

Joe Biden Bandaríkjaforseti
Joe Biden Bandaríkjaforseti AFP

Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur sett af stað formlegt svar alríkisstjórnar gegn nýjum lögum Texas-ríkis sem bannar flestar fóstureyðingar.

Hæstiréttur ákvað í fyrradag að ógilda ekki lögin og telur Biden það vera „fordæmalausa árás á réttindi kvenna.“

Samkvæmt lögunum hefur nú hver sem er rétt á að lögsækja hvern þann sem aðstoðar þungaða konu við að rjúfa meðgöngu eftir sjöttu viku. 

Meirihluti hæstaréttar tók ekki afstöðu til hvort þau færu á svig við stjórnarskrá Bandaríkjanna. Því er mögulegt að höfða dómsmál til að láta reyna á lögmæti laganna. 

Biden segir lögin ganga gegn meginreglu dómsmálsins, Roe v. Wade-máli frá átt­unda ára­tugn­um, þar sem kon­ur öðluðust þann rétt, með ákvörðun hæsta­rétt­ar Banda­ríkj­anna, að rjúfa meðgöngu allt þar til fóst­ur gæti lifað utan móðurkviðs, sem vana­lega er miðað við 22. - 24. viku.

Flókið málaferli

Forsetinn hefur því farið þess á leit við heilbrigðismálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið að þau finni leiðir til að „aðgreina konur og þungunarrofsstofnanir“, án þess að útskýra frekar hvað hann á við með því.

Biden sakar hæstarétt um að hafa leyst úr læðingi „ringulreið sem bryti í bága við stjórnarskránna“. 

„Hæstiréttur mun leyfa milljónum einstaklinga í Texas sem þurfa á meðferð að halda að þjást á meðan dómstólar sigta í gegnum flókið málaferli,“ sagði Biden. 

Greg Abbott ríkisstjóri Texas segir að ríki hans muni ávalt verja réttinn til lífs.

Frétt á vef BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert