Hraunið hefur náð til sjávar á La Palma

Hraunið úr eldfjallinu Cumbre Vieja á eyjunni La Palma á Kanaríeyjum hefur náð til sjávar. Óttast er að gasmengun berist í kjölfarið út í andrúmsloftið.

Stjórnvöld höfðu áður bannað alla umferð tveimur sjómílum frá staðnum þar sem hraunið rennur í sjóinn. Íbúar í nágrenninu voru einnig hvattir til að halda sig heima við.

Í meðfylgjandi myndskeiði frá AFP má sjá þegar hraunið fór út í sjóinn með tilheyrandi reykjarmekki.

Cumbre Vieja, sem er á suður­hluta La Palma, gaus fyrst 19. sept­em­ber. Síðan þá hef­ur hraun runnið hægt og ró­lega í átt að sjón­um. Flug­vell­in­um á eyj­unni var lokað á laug­ar­dag­inn en hann var opnaður aft­ur daginn eftir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert