50 látnir eftir sprengingu í mosku í Afganistan

Lík borin út úr moskunni í Kunduz í Afganistan, en …
Lík borin út úr moskunni í Kunduz í Afganistan, en mikil sprenging varð þar í dag og að minnsta kosti 50 eru látnir. AFP

Að minnsta kosti 50 eru látnir eftir sprengingu í mosku í borginni Kunduz í Afganistan.

AFP fréttaveitan hefur eftir lækni á sjúkrahúsi í Kunduz að 35 látnir hafi verið fluttir á spítalann og 50 aðrir til viðbótar sem séu slasaðir. Annar spítali, sem rekinn er af Læknum án landamæra, hafði tekið á móti 15 sem höfðu látist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert