Ástralar flykktust í matvöruverslanir við afléttingu

Útgöngubann sem staðið hefur í 107 daga í Sydney í Ástralíu var aflétt á miðnætti. Á meðan útgöngubanninu stóð, var ekki leyfilegt að gera sér hefðbundna ferð í matvöruverslanir og var einungis leyfilegt að yfirgefa heimili sín fyrir nauðsynjavöru. 

Langar biðraðir fyrir utan matvöruverslanir höfðu myndast þegar aflétting bannsins tók gildi að miðnætti. Ástralar héldu sömuleiðis margir á krár borgarinnar og morguninn eftir héldu margir í klippingu eða rakstur, heilsurækt og margt fleira sem hafði verið bannað í rúma þrjá mánuði. 

Sjá má myndskeið fréttastofu BBC um afléttingarnar hér: 

Fram kemur í umfjöllun BBC að helst takmarkanir gildi enn fyrir óbólusetta einstaklinga. 

Mikil gleði var við völd í Sydney í Ástralíu í …
Mikil gleði var við völd í Sydney í Ástralíu í nótt. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert