Hundruð mótmæltu fyrir loftslagið í Glasgow

Um­hverf­is­sam­tökin Extinction Rebellion hafa áður vakið athygli.
Um­hverf­is­sam­tökin Extinction Rebellion hafa áður vakið athygli. AFP

Hundruð aðgerðasinna komu saman í Glasgow í Skotlandi í dag til að hvetja leiðtoga heimsins að bregðast við loftslagsbreytingum. Á morgun hefst lofts­lags­fund­ur Sam­einuðu þjóðanna, COP26, í borginni. 

Labbaði frá Spáni til Glasgow 

Aðgerðasinnar komu víða að, þar á meðal frá nokkrum öðrum Evrópulöndum og höfðu sumir gengið langar vegalengdir til að komast til Glasgow.

„Við viljum sjá áþreifanlegar ráðstafanir og við viljum sjá stuðning við hið hnattræna suður [e. Global south]. Þetta er síðasti séns,“ sagði einn aðgerðasinni sem hafði gengið frá Spáni til Glasgow í samtali við fréttastofu AFP.

AFP

Um­hverf­is­sam­tökin Extinction Rebellion leiddu mótmælin en samtökin hafa komið að mótmælum víðsvegar um heim og vakið mikla athygli.

Skipuleggjendur búast við allt að hundrað þúsund aðgerðarsinnum á mótmæli á föstudaginn næsta. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert