Gætu náð höfuðborginni á næstu vikum eða mánuðum

Yfirgefin skriðdreki suðvestur af borginni Mekele í Tygrai-héraði.
Yfirgefin skriðdreki suðvestur af borginni Mekele í Tygrai-héraði. AFP

Uppreisnarmenn gætu náð völdum yfir Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, á næstu „mánuðum og jafnvel viku“, Samtökin Oromo sem tengjast uppreisnarsveitum úr Tigray-héraði, greindu AFP-fréttastofunni frá þessu.

Upp­reisn­ar­her­inn í Tigray­-héraði hef­ur háð stríð við rík­is­stjórn Abiy Ah­meds, for­sæt­is­ráðherra Eþíóp­íu, síðastliðið ár en Tigray­-héraðið er í norður­hluta landsins. 

Odaa Tarbii, talsmaður Frelsishers Oromo (OLA) sem hefur einnig náð framgangi á svæðum í kringum Addis Ababa, sagði að her hans ætlaði sér að koma ríkisstjórn Abiy frá völdum.

„Ef hlutirnir halda áfram á sama veg þá erum við að tala um mánuði og jafnvel vikur,“ sagði hann og átti við framgang OLA í átt að Addis Ababa.

Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu, tekur við blómvendi frá ungri stúlku …
Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu, tekur við blómvendi frá ungri stúlku í júní síðastliðnum. AFP

Ummælin komu klukkustundum eftir að Eþíópía lýsti yfir neyðarástandi og bað íbúa Addis Ababa um að undirbúa það að verja sín hverfi.

Í yfirlýsingu sem var gefin út í morgun sakaði Abiy Ahmed uppreisnarmenn um að reyna að breyta Eþíópíu í Líbýu og Sýrland og bætti við: „Þeir ætla sér að eyðileggja land, ekki reyna að byggja það upp.“

Hann hvatti íbúa til að styðja stjórnarherinn og sagði: „Sigur á þessari ógn sem stafar af óvinum okkar næst ekki ef við vinnum ekki saman.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert