Löfven tilkynnir afsögn sína

Löfven afhendir hér þinginu formlega afsögn sína.
Löfven afhendir hér þinginu formlega afsögn sína. AFP

Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, tilkynnti í dag afsögn sína, en við því hafði verið búist frá því vantrauststillaga var samþykkt gegn ríkisstjórn hans fyrr í sumar. Með afsögn sinni greiðir hann götu væntanlegs arftaka síns, Magdalenu Andersson. AFP-fréttastofan greinir frá.

Andersson verður fyrsti kvenkyns forsætisráðherra Svíþjóðar, takist henni að fá stuðning þingsins. Mun hún þá gegna embættinu að minnsta kosti fram að næstu þingkosningum sem fyrirhugaðar eru í september á næsta ári.

Löfven, sem hefur gegnt embætti forsætisráðherra í sjö ár, steig til hliðar sem formaður Jafnaðarmannaflokksins á flokksþingi í síðustu viku og var Andersson, sem gegnt hefur starfi fjármálaráðherra, kjörin í hans stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert