Austurríki skoðar útgöngubann fyrir alla

Austurríki varð fyrst Evrópuríkja til að setja á útgöngubann fyrir óbólusetta einstaklinga og sömuleiðis fyrsta Evrópuríkið til að hefja bólusetningu á börnum gegn Covid-19 allt niður í fimm ára. Til skoðunar er að setja á frekari aðgerðir til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar.

Nú eru 65 prósent Austurríkismanna bólusettir en það er undir meðaltali Evrópuríkja, en það er 67 prósent.

Takmarkanirnar á óbólusettum eru umdeildar, en mörg hundruð komu saman í Vínarborg, höfuðborg Austurríkis, í gær til að mótmæla.

„Þetta takmarkar líf mitt og frelsi mitt. Það er kominn tími til að fleiri tjái sig,“ sagði einn mótmælandi við fréttastofu AFP.

Austurríki byrjaði að bólusetja börn á aldrinu fimm til ellefu …
Austurríki byrjaði að bólusetja börn á aldrinu fimm til ellefu ára í dag. AFP

Lyfjastofnun Evrópu ekki á sama máli

Yfirvöld í Vínarborg tóku á skarið í dag og byrjuðu að bólusetja börn á aldrinum fimm til ellefu ára en Lyfjastofnun Evrópu hefur ekki enn samþykkt bólusetningu fyrir þann aldurshóp.

Teiknimyndir af ninja-skjaldbökum og tígrisdýrum prýddu bólusetningarbása í dag. Borgaryfirvöld segja að búið sé að panta bólusetningu fyrir tíu þúsund börn. 

Deilur um útgöngubann fyrir alla

Ríkisstjórn Austurríkis vonast til að ráðstafanir þeirra geti hefta frekari útbreiðslu veirunnar og sömuleiðis dregið úr álagi á gjörgæslu. 

Deilur eru nú á milli ráðherra um möguleika á frekari aðgerðum, til dæmis um útgöngubann fyrir alla á kvöldin.

Búið er að skreyta bólusetningarbása með teiknimyndum af ninja-skjaldbökum og …
Búið er að skreyta bólusetningarbása með teiknimyndum af ninja-skjaldbökum og tígrisdýrum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert