Biður Bieber að hætta við

Justin Bieber.
Justin Bieber. AFP

Unnusta Jamals Khashoggis, sem var myrt­ur á ræðismanns­skrif­stofu Sádi-Ar­ab­íu í Ist­an­b­úl árið 2018, hefur biðlað til söngvarans Justins Biebers að hætta við fyrirhugða tónleika í Sádi-Arabíu í næsta mánuði.

Bin Salm­an, krón­prins Sádi-Arabíu, samþykkti laun­morðið á Khashoggi að mati banda­rísku leyniþjón­ust­unn­ar, CIA.

Kanadíski söngvarinn er einn af nokkrum sem munu taka lagið í tengslum við fyrsta formúlu-1-kappaksturinn borginni Jeddah 5. desember.

Hatice Cengiz, unnusta Jamal Khashoggi.
Hatice Cengiz, unnusta Jamal Khashoggi. AFP

Unnustan, Hatice Cengiz, skrifaði Bieber opið bréf þar sem hún hvatti hann til að senda „mikilvæg skilaboð“ með því að hætta við að koma fram.

„Ekki syngja fyrir þá sem myrtu Jamal,“ skrifaði Cengiz meðal annars.

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert