Fimm eru látnir og 40 slasaðir eftir að jeppa var ekið inn í jólaskrúðgöngu í borginni Waukesha í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum síðdegis í gær að staðartíma.
Dan Thompson lögreglustjóri sagði að keyrt hefði verið á fleiri en 20, þar á meðal börn.
Myndbandsupptökur náðust af rauðum jeppa keyra af miklum hraða gegnum hóp fólks í skrúðgöngunni.
Samkvæmt erlendum fréttamiðlum virtist bílstjóri jeppans vera á flótta þegar hann keyrði á fólk í skrúðgöngunni.
Lögreglan hafði fljótlega upp á bílnum og hefur mann í haldi. Ekki er talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða.