29 létust þegar yfirfullum bát hvolfdi

Kort/Google

Bát hvolfdi sem var á siglingu í Kano-ríki í norðvesturhluta Nígeríu með þeim afleiðingum að minnsta kosti 29 létust. Báturinn var yfirfullur, en alls voru um 42 farþegar um borð. Meirihlutinn börn á aldrinum átta til fimmtán ára.

Talsmaður slökkviliðsins í ríkinu segir að sjö farþegum hafi verið bjargað og að 29 lík hafi fundist. Leit stendur enn yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert