Biden ræði við Zelensky

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, á blaðamannafundi í gær.
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, á blaðamannafundi í gær. AFP

Joe Biden, foseti Bandaríkjanna, mun ræða við Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu símleiðis í dag um stöðuna á landamærum Úkraínu og Rússlands og fullvissa hann um stuðning Bandaríkjanna við Úkraínu. 

Biden varaði Rússa nýlega við að gripið yrði til viðskiptaþvingnanna sem aldrei fyrr, ráðist Rússar inn í Úkraínu. 

Viðvörun Bidens kom aðeins degi eftir að hann fundaði í fjarfundabúnaði með Vladímír Pútín, forseta Rússlands, um spennu á landamærum landanna tveggja. 

Eftir að Biden hefur rætt við Zelensky mun hann hringja í leiðtoga níu Atlantshafsbandalagsþjóða í Austur-Evrópu, þeirra á meðal Póllands og Eystrasaltsríkjanna, og ræða fund sinn með Pútín, er kemur fram í tilkynningu frá Hvíta húsinu. 

Biden sagði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær að hann hafi, á fundi sínum með Pútín, verið skýr varðandi efnahagslegar afleiðingar fyrir Rússland, ráðist þeir á Úkraínu, yrðu verri en nokkurn tíman hefði sést. Bætti hann þó við að ekki stæði til að senda bandaríska hermenn til Úkraínu til að mæta rússneska hernum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert