Sex börn látin eftir hoppukastalaslysið

Ástralskir lögreglumenn fyrir helgi skammt frá staðnum þar sem slysið …
Ástralskir lögreglumenn fyrir helgi skammt frá staðnum þar sem slysið varð. AFP

Sex börn hafa látist eftir hoppukastalaslysið sem varð í Ástralíu í síðustu viku.

Að sögn áströlsku lögreglunnar lést 11 ára drengur á sjúkrahúsi eftir að hafa lent í slysinu.

Þrír dagar eru liðnir síðan hoppukastalinn lyftist frá jörðu þegar verið var að fagna skólalokum í bænum Devenport í norðurhluta Tasmaníu.

„Með sorg í hjarta staðfesti ég að 11 ára drengur lést á sjúkrahúsi,” sagði lögreglumaðurinn Darren Hine.

„Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans og fjölskyldum og ástvinum allra barnanna á þessum ólýsanlega erfiðu tímum.”

Þrír 12 ára drengir og tvær stúlkur, 11 og 12 ára höfðu áður látist eftir að vindhviða feykti kastalanum í loftið.

Tvö önnur börn liggja alvarlega slösuð á sjúkrahúsi en eitt er komið heim til sín og er á batavegi.

Rannsókn stendur yfir á slysinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert