Starfsfólks Barnaheilla saknað eftir mannskæða árás

Barnaheill segja herinn hafa þvingað fólk úr bílum sínum.
Barnaheill segja herinn hafa þvingað fólk úr bílum sínum. AFP

Alþjóðlegu góðgerðarsamtökin Barnaheill (e. Save the Children) segja að tveggja starfsmanna þeirra sé saknað eftir mannskæða árás í Mjanmar. Sagt er að her landsins hafi framið árásina.

BBC greinir frá. 

Góðgerðarsamtökin segja hermenn hafa þvingað fólk út úr bílum sínum, handtekið suma, drepið aðra og brennt lík í austurhluta Kayah-fylkis. Herinn heldur því fram að hann hafi drepið fjölda vopnaðra hryðjuverkamanna á svæðinu.

Í yfirlýsingu frá Barnaheillum er árásin fordæmd og sagt að minnst 38 hafi látið lífið. Þau segja tvo starfsmenn sína, sem voru á leið heim yfir hátíðirnar, hafa orðið fyrir árásinni og sé saknað. „Við höfum staðfest að ráðist var á einkabíl þeirra,“ segir í yfirlýsingunni.

„Við erum skelfingu lostin yfir ofbeldinu sem beitt var gegn saklausum borgurum og starfsmönnum okkar sem hafa unnið dygðugt mannúðarstarf sem styður milljónir barna í neyð víðsvegar um Mjanmar,“ bætti Inger Ashing, framkvæmdastjóri Barnaheilla, við.

Fjöldamótmæli hafa átt sér stað víðsvegar um Mjanmar síðan herinn náði völdum í febrúar. Kjörinn leiðtogi Mjanmars, Aung San Suu Kyi, og félagar í flokki hennar eru meðal þeirra sem eru í haldi hersins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert