Staða Andrésar Bretaprins óljós

Andrés Bretaprins býður eftir að mál hans verði tekið fyrir.
Andrés Bretaprins býður eftir að mál hans verði tekið fyrir. AFP

Óljóst er hver staða Andrésar Bretaprins er eftir að Ghislaine Maxwell var sakfelld í gær fyrir að hafa útvegað fyrr­ver­andi kær­asta sínum og kyn­ferðisaf­brota­mann­in­um Jef­frey Ep­stein stúlk­ur und­ir lögaldri sem hann síðan braut á kyn­ferðis­lega. Prinsinn var góður vinur Maxwell og Epstein.

Fyrr á þessu ári var Andrés Bretaprins kærður fyr­ir að hafa brotið kyn­ferðis­lega gegn Virg­inu Giuf­fre þegar hún var 17 ára árið 2001.

Í réttarhöldunum gegn Maxwell kom ekkert fram um að Bretaprinsinn hafi tekið þátt í brotum fyrrverandi kærustuparsins.

Í frétt BBC segir að hefði Maxwell verið sýknuð hefði það geta grafið undan fullyrðingum Giuffre um prinsinn, en hún hélt því fram að Maxwell hafi árum saman haft umsjón með kynlífskeðju Epsteins og tekið virkan þátt í að ráða stúlkur undir lögaldri, þar á meðal sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert