Fara fram á sannanir um að prinsinn svitni ekki

Andrew prins, hertogi af Jórvík, er sakaður um alvarleg kynferðisbrot.
Andrew prins, hertogi af Jórvík, er sakaður um alvarleg kynferðisbrot. AFP

Lögmenn bandarískrar konu sem hefur sakað Andrés prins um kynferðislegt ofbeldi leita nú sannanna þess að prinsinn geti ekki svitnað, líkt og hann hefur sjálfur haldið fram.

BBC greinir frá. 

Lögmannateymi brotaþolans Virginiu Giuffre hafa farið fram á sannanirnar sem lið í einkaréttarmáli gegn prinsinum fyrir dómi í New York.

Viðtalið er rifjað upp hér:

Fullyrðing Andrésar prins þess efnis að hann geti ekki svitnað var hluti af vörn hans gegn ásökunum konunnar, enda hafði hún sagt hann „viðbjóðslegasta dansara sem hún hafði séð“ og lýst því hvernig svita­drop­ar spýtt­ust í all­ar átt­ir frá prins­in­um áður en henni hafi verið skipað að hafa samræði við prinsinn. 

Ummælin lét Andrés falla í Panorama, fréttaskýringaþætti BBC, og bar sem fyrr segir af sér sakir og sagðist ekki getað svitnað.

Giuffre sem er í dag 38 ára, var aðeins unglingur þegar brot Andrésar prins eiga að hafa átt sér stað, að heimilum Jeffrey Epsteins heitins, fjárfestir og barnaníðings og Ghislaine Maxwell sem sakfelld var í fyrradag fyrir þátttöku sína í barnaníði og mansali Epsteins.

Andrés prins hefur ávallt neitað ásökunum um nokkurn glæp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert